Fyrir 60 árum uppgvötaðist vítamín-líkt efni sem virtist spila stórt hlutverk í nýtingu steinefna, vörn gegn tannskemmdum, vörn gegn hjartasjúkdómum og ýmislegt fleira. Þetta nýja efni var kallað “Activator X” og var í raun ekki skilgreint sem K2 vítamín fyrr en árið 1997, næstum 40 árum eftir uppgvötun. Það er svo að koma betur og betur í ljós hversu gríðarlega mikilvægt þetta efni er fyrir heilbrigða líkamsstarfsemi.
Efnafræðilegt hlutverk K2 er að hjálpa kalki að komast á rétta staði í líkamanum, eins og t.d. til tanna og beina. Það stuðlar einnig að því að hindra kalkmyndun á óæskilegum stöðum, eins og í æðum og mjúkvef og er því mikilvæg forvörn t.d. gegn æðakölkun.
K vítamín er tvenns konar; K1 og K2. Þau hafa ekki sömu virkni, en bæði vinna þau gegn beinþynningu og vinna gegn áverkum en K1 vítamín hefur ekki sömu eiginleika til að flytja kalk og K2 vítamín. Helsta uppspretta K1 vítamíns er úr laufuðu grænmeti meðan K2 má helst finna í dýrum sem éta gras og jurtir og framleiða K2 vítamín úr K1 vítamínum sem þau innbyrða.
Í hinum vestræna heimi okkar er almennt mikill skortur á K2 vítamíni en hér á Íslandi er mikið af grasfóðruðum dýrum og því ætti að vera nóg af K2 vítamíní í innlendu dýrakjöti og mjólkurvörum. K2 ríkasta fæðutegundin er sennilega gæsalifur, feitt kjöt og innmatur úr dýrum en eggjarauða, smjör (eða ghee), kjúklingur og mygluostar eru líka stútfullir af K2 vítamíni. Grænmetisætur geta fengið K2 úr natto, sem er japanskt að uppruna og búið til úr sojabaunum með vissri bakteríu, eða úr súrkáli. Flest bætiefni með K2 eru yfirleitt í formi MK-7 (menaquinone 7) og er unnið úr natto.
Það er ennþá erfitt að mæla magn K2 vítamíns í líkamanum og því erfitt að segja til um hvort skortur sé á því hjá þér. Áður en þú ferð og kaupir þér fullt af bætiefnum skaltu byrja á að skoða mataræðið þitt. Þú þarft ekki mikið til að fá fullnægjandi magn af K2 vítamínum, t.d. 2 eggjarauður eru með fínan dagskammt af K2.
Ef þú borðar heilsteypt fæði ættirðu að fá nóg af K2 en sem forvörn gegn áðurnefndum kvillum gætirðu bætt K2 vítamíni við sem fæðubót.
Skrifað með fyrirvara um að greinarhöfundur skrifar út frá bestu vitund miðað við fengnar heimildir og er hvorki efnafræðingur, næringarfræðingur né lyfjafræðingur. Lesandi er beðinn um að taka skrifunum með fyrirvara og afla sér heimilda á eigin spýtur og mynda sér skoðun byggða á eigin forsendum.